Quesadillas með blómkáli og hnetum
- 20 Mins
 - 7 Ingredients
 - Medium
 
Quesadillas eru alltaf góðar! Í þessari uppskrift er fyllingin úr blómkáli og ristuðum hnetum ásamt jalapeño-mauki og osti. Tortillan er svo steikt á pönnu þar til osturinn er bráðnaður. Einstaklega gott!
What to shop
			Serves {0} portions      
				
					
				
	
			| 1 lítið blómkálshöfuð | 
| 1 pk Santa Maria Tortilla Original Medium 8-pack | 
| 1 dl Santa Maria Jalapeño Topping | 
| 1 dl heslihnetur | 
| 3 dl rifinn ostur (parmesan) | 
| 1 msk olía | 
| 1 handfylli kóriander | 
How to prepare
- Kljúfið blómkálið í þunnar skífur og steikið á þurri pönnu þar til grænmetið hefur mýkst og fengið á sig gullinn blæ.
 - Smyrjið þunnu lagi af jalapeño-topping mauki á hverja tortillu.
 - Hakkið heslihneturnar gróft og ristið á þurri pönnu. Takið svolítið af hnetumulningnum til hliðar til að skreyta með síðar.
 - Blandið saman blómkáli, rifnum osti og hnetumulningum í skál og deilið fyllingunni niður á tortillurnar, setjið aðeins á hálfa kökuna.
 - Leggið hinn helming tortillunnar yfir og þrýstið saman.
 - Steikið tortillurnar á báðum hliðum í olíu á pönnu við meðalhita þar til kökurnar hafa tekið fallegan lit og osturinn er bráðnaður.
 - Sprautið svolitlu af jalapeño-topping yfir hverja köku, stráið svo yfir söxuðum kóriander og afganginum af hnetumulningnum.
 - Skerið hverja köku í þrjár sneiðar og berið fram!