Mexíkósk eggjahræra

Mexíkósk eggjahræra - "Migas"

10
  • 20 Mins
  • 10 Ingredients
  • Medium

Ef þú færð aldrei nóg af mexíkóskum mat er þetta morgunverður að þínu skapi! Mexikóskar "Migas" er eggjaréttur sem útbúinn er á pönnu og borinn fram með flögum, salsa, lárperum og kóríander. Prófaðu - þetta er bragðgóður og matarmikill morgunverður!

What to shop

Serves {0} portions
Migas
0.5 laukur
1 msk Santa Maria Red Jalapeño
1 msk ólívuolía
8 egg
1.5 dl (100 g) rifinn ostur
1 tsk salt
Meðlæti
0.5 poki Santa Maria Tortilla Chips Salted
1 krukka Santa Maria Chunky Salsa Medium 230 g
1 avókadó
1 lófafylli ferskur kóriander (eða 2 msk saxaður graslaukur)

How to prepare

  1. Steiktu laukinn og jalapeño-piparinn í ólívuolíu við meðalhita.
  2. Hrærðu létt saman í skál eggjunum, rifna ostinum og salti.
  3. Helltu eggjahrærunni yfir grænmetið á pönnunni og leyfðu henni að taka sig í u.þ.b. hálfa mínútu. Þá skaltu ýta aðeins við eggjunum með trésleif hér og hvar þar til þau eru elduð - en þó enn mjúk.
  4. Gott er að mylja svolítið af tortilla flögum og sáldra yfir eggjahræruna sem og söxuðum kóríander eða graslauk og bera svo fram með salsa og avókadó í sneiðum. 

Mexíkóska eggjahræran (Migas) er hinn fullkomni og einfaldi morgunmatur! Hún hentar líka vel á hlaðborðinu fyrir hátíðarbrönsinn - og þá jafnvel spariútgáfan með beikoni, hráskinku og steiktum kartöflum.